Mömmuform framhald
Leiðbeinendur:
Mömmuform eru 4 vikna líkamsræktarnámskeið fyrir nýbakaðar mæður sem vilja stunda áhrifaríka og örugga þjálfun eftir barnsburð.
Fjölbreytt námskeið þar sem lögð verður áhersla verður á að byggja líkamann vel upp eftir meðgöngu. Stöðugleikaæfingum, styrktaræfingum og þolæfingum verður blandað saman á markvissan hátt. Æfingar verða gerðar með eigin líkamsþyngd, lóðum, teygjum og fleiri áhöldum auk þess sem börnin taka einnig þátt í þjálfuninni.
Við bjóðum uppá grunnnámskeið og framhaldsnámskeið.
Þetta eru framhaldstímar fyrir þær sem hafa lokið við grunnnámskeiðið. Hér verður reynt meira á styrk og úthald. Krefjandi og skemmtilegir tímar.
Kennari: Valgerður Tryggvadóttir
Aukatími fyrir báða hópa er á föstudögum kl. 13.30-14.25.
Mikil áhersla verður lögð á þjálfun kvið- og bakvöðva.
Kennarar: Matja og Valgerður
Allar mæður með börn á aldrinum 6 vikna til eins árs eru velkomnar og að sjálfsögðu eru börnin velkomin með í tímana hvort sem þau sofa eða vaka á meðan tímanum stendur. Leikteppi og leikföng eru til staðar í salnum.
Heimaæfingaprógrömm og fræðslupóstar eru innifalin í námskeiðinu.
Þjálfarar námskeiðanna eru Matja Steen, Valgerður Tryggvadóttir og Herdís Guðrún Kjartansdóttir sjúkraþjálfarar. Þær hafa allar mikla reynslu í hóptímakennslu og að vinna með konum á meðgöngu og eftir meðgöngu.

Herdís Guðrún Kjartansdóttir
SJÚKRAÞJÁLFARI BSC

Matja Dise M. Steen
SJÚKRAÞJÁLFARI BSC

Valgerður Tryggvadóttir
SJÚKRAÞJÁLFARI BSC
6 vikur, 2x viku:
20.400 kr.
Tímar(2)
mánudagur
12:30 - 13:30
Leiðbeinandi: Herdís
Salur A
miðvikudagur
12:30 - 13:30
Leiðbeinandi: Herdís
Salur A
mánudagur
12:30 - 13:30
Leiðbeinandi: Herdís
Salur A
miðvikudagur
12:30 - 13:30
Leiðbeinandi: Herdís
Salur A