Gæðastefna Sjúkraþjálfun Styrkur er leiðandi og eftirsótt fyrirtæki með metnað fyrir faglegum vinnubrögðum þar sem skjólstæðingar njóta hæfni og reynslu starfsmanna til að bæta eigin líðan og lífsgæði. Við byggjum starf okkar á þekkingu, ábyrgð og vönduðu verklagi á öllum stigum þjónustunnar. Þjónustan er persónuleg, skilvirk og tekur mið af þörfum hvers og eins, ásamt því að leitað er leiða til að bæta þjónustu, verklag og árangur. Stefna Styrks er að skara fram úr á sviði endurhæfingar, þjálfunar og heilsueflingar með því að bjóða einstaklingum og hópum fyrsta flokks þjónustu í notalegu umhverfi.
Markmið okkar er að veita örugga, faglega og persónulega þjónustu sem stuðlar að auknum lífsgæðum og vellíðan skjólstæðinga. Við byggjum starf okkar á virðingu, samvinnu og fagmennsku og skuldbindum okkur til stöðugra umbóta í allri okkar starfsemi.
Starfsmannastefna: Við styðjum við starfsþróun, heilsu og vellíðan starfsmanna með virku og öruggu vinnuumhverfi. Regluleg endurmenntun starfsmanna, notkun og innleiðing viðurkenndra klínískra leiðbeininga, jafningjaaðhald og teymisvinna er hluti starfsmannastefnunnar auk þess sem regluleg starfsmannasamtöl eru viðhöfð.
Öryggisstefna: Áhættumat starfa er metið innan fyrirtækisins skv. lögum um vinnuvernd. Við tryggjum öryggi skjólstæðinga og starfsmanna með skipulögðum ferlum, forvörnum og viðbragðsáætlunum. Markvisst áhættumat starfa er framkvæmt, atvikaskráning er í skilgreindum ferlum og öruggt umhverfi er til staðar.
Þjónustustefna: Þjónustan skal vera aðgengileg, árangursrík og einstaklingsmiðuð. Reglulegar þjónustukannanir eru framkvæmdar og lögð áhersla á virkt viðbragð við ábendingum og kvörtunum.
Umhverfisstefna: Við leggjum ríka áherslu á sjálfbærni og ábyrgð gagnvart umhverfinu. Við drögum úr sóun og notum auðlindir á ábyrgan hátt.
Með þessari gæðastefnu leggur Sjúkraþjálfun Styrkur sig fram um að mæta væntingum skjólstæðinga, starfsmanna og samfélags með ábyrgð, fagmennsku og gæði í huga. Gæðastefna Styrks byggir á evrópskum gæðastöðlum um sjúkraþjálfun þar sem verklagsreglur og gátlistar hafa verið útbúnir og skilgreint eftirlit fer fram til að tryggja að þeim sé framfylgt. Gildi Styrks sjúkraþjálfunar eru OKKAR STYRKUR – YKKAR STYRKUR sem eiga að endurspeglast í gæðastefnu og starfsemi fyrirtækisins.