GrunnStyrkur
Markmið námskeiðsins er að bjóða upp á þjálfunarúrræði fyrir þá einstaklinga sem hingað til hafa átt erfitt með að finna sér þjálfun við hæfi vegna stoðkerfisverkja eða eru að hefja hreyfingu á ný eftir langt hlé.


Hjarta- og lungnahópar
Þjálfun er fjölkerfa og mikil áhersla lögð á fjölbreytni í æfingum. Æft er undir handleiðslu sjúkraþjálfara í hóptímum ásamt þjálfun i tækjasal. Jafnframt er einstaklingnum kennt að meta eigin getu og þannig
gerður ábyrgur í þjálfuninni.
HugarStyrkur
Hugarró og slökun á vöðvum líkamans draga úr kvíða og spennu og þannig er hægt að hafa bein áhrif á líðan og heilsu.


JafnvægisStyrkur
Jafnvægis og færnisþjálfun þarf alltaf að vera fjölkerfaþjálfun þar sem öll kerfin þurfa að virka til að viðkomandi geti haldið jafnvægi og færni. Jafn mikil áhersla er lögð á að þjálfa hreyfi- og skynkerfin.
Liljur og Kubbar
Liljur og Kubbar eru kynjaskipt þjálfunarúrræði sem þurfa aðhald og aðlögun í þjálfun vegna stoðkerfis-og/eða taugaeinkenna.


MS hópar
Þjálfunin byggir á styrktar- og jafnvægisþjálfun og einnig er unnið að því að bæta liðleika og draga úr stoðkerfisverkjum sem geta fylgt sjúkdómnum.
Mömmuform
Þjálfun í sal 2x í viku þar sem lögð er áhersla á að byggja upp
grunnstyrk, liðka og tengjast líkamanum aftur eftir meðgöngu.


Parkinson hópar
Þjálfunin byggir á styrktar- og jafnvægisþjálfun og einnig er unnið að því að bæta liðleika og draga úr stoðkerfisverkjum sem geta fylgt sjúkdómnum.
Tækjasalshópar
Úrræði í tækjasal fyrir einstaklinga sem þurfa þjálfun undir handleiðslu sjúkraþjálfara.


Vefjargigtarleikfimi
Þjálfunin byggist á styrkjandi og liðkandi æfingum, teygjum, úthaldsaukandi æfingum og slökun.