Skip to content

Auður Ólafsdóttir

Starfssvið

Stjórnun og rekstur
Hjartaendurhæfing

Auður Ólafsdóttir
Sjúkraþjálfari BSc, MPM


Starfsferill

1999-
Sjúkraþjálfun Styrkur ehf.
Framkvæmdastjóri. Stofnandi og eigandi fyrirtækisins ásamt 12 öðrum sjúkraþjálfurum
Hópþjálfun fyrir hjarta- og lungnasjúklinga til ársins 2019
2017-
Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu (ÞÍH)
Fagstjóri sjúkraþjálfunarþjónustu innan ÞÍH
1992- 2009
Háskóli Íslands
Stundakennari í Læknadeild við Námsbraut í sjúkraþjálfun
Stundakennari við Hjúkrunarfræðideild í vinnuvistfræði og líkamsbeitingu
1992-
Ráðgjöf um vinnuvernd og líkamsbeitingu innan fyrirtækja víða um land. Kennsla um líkamsbeitingu
og vinnutækni á námskeiðum, í skólum og innan fyrirtækja. Stofnandi og eigandi Ergo –
vinnuverndar ásamt tveimur öðrum sjúkraþjálfurum. Greining og mat á áhættuþáttum og gerð
áhættumats í vinnuumhverfi starfsmanna. Þátttaka í hönnunar- og skipulagsferlum innan fyrirtækja
og stofnana.
1992-1999 
Yfirsjúkraþjálfari á Endurhæfingarstöð hjarta- og lungnasjúklinga
júní -ágúst 1991 
Máttur – sjúkraþjálfun ehf.
Einstaklingsmeðferð og fræðslunámskeið.
1989-1992 
Sjúkraþjálfari á Endurhæfingastöð hjarta- og lungnasjúklinga
Sjúkraþjálfari í hópþjálfun hjarta- og lungnasjúklinga. Framkvæmd áreynsluþolprófa
1986-1991 
Landspítali – LSH í Fossvogi.
Almenn sjúkraþjálfun á ýmsum deildum stofnunarinnar ásamt göngudeild sjúkraþjálfunar.
Starfsmannasjúkraþjálfun, bakskóli, heilsurækt starfsmanna, fræðsla.
Umsjón með einstökum verkefnum s.s útgáfu fræðsluefnis.
Verkmenntunarkennari nema í sjúkraþjálfun 1989 – 1991.
1984 -1985 
Gáski sjúkraþjálfun
Leiðbeinandi í tækjasal. Síðdegis- og kvöldvinna

Hefur haldið fjölda fyrirlestra og fræðslunámskeið um álagseinkenni, líkamsbeitingu og vinnutækni.
Einnig um endurhæfingu hjartasjúklinga og Hreyfiseðilinn. Hefur skrifað greinar þessu tengt.


Menntun

2007
Háskóli Íslands – Meistarapróf í verkefnastjórnun – MPM
Lokaverkefni: Siðferði og samningar
1997- 1998
Brautargengi – Frá hugmynd til veruleika. Nám fyrir konur í atvinnurekstri
1986
Háskóli Íslands – Læknadeild – BSc próf í sjúkraþjálfun
Hefur sótt fjölda ráðstefna og námskeiða hérlendis og erlendis, einkum tengd vinnuvistfræði,
endurhæfingu hjartasjúklinga, stoðkerfisvandamálum og fagþróun sjúkraþjálfunar.


Félagsstörf

2015-
Gagnanefnd – Rafrænt sjúkraskrárkerfi sjúkraþjálfara
2010-
Samninganefnd FS
2010-2019
Samstarfsnefnd FS og SÍ
2009-
Hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í gegnum tíðina fyrir Félag sjúkraþjálfara (FS)
2002-2009
Formaður FÍSÞ
2001-2009
Stjórn FÍSÞ
1999-2001
Fagnefnd FÍSÞ
1995-1998
Fræðslunefnd FÍSÞ