Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga við upphaf meðferðar:
Sjúkraþjálfarar Sjúkraþjálfunar Styrks starfa á samningi við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og er greiðsluþátttaka einstaklinga samkvæmt greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga. Styrkur sér um innheimtu á greiðsluhluta SÍ fyrir viðskiptavini sína – sjá gjaldskrá.
Heimilt er að koma í sex skipti í sjúkraþjálfun án þess að hafa beiðni. Eftir þessi sex skipti er þörf á að koma með beiðni frá lækni eða sjúkraþjálfara á heilsugæslu ef SÍ á að taka þátt í kostnaði meðferðar. Eins er undirskrift viðkomandi nauðsynleg við hverja komu til að hægt sé að innheimta greiðslur frá Sjúkratryggingum Íslands.
Vinsamlegast greiðið fyrir hvern meðferðartíma sé greiðsluþátttaka einstaklings er til staðar, nema um annað sé samið við viðkomandi sjúkraþjálfara.
Ef ekki er hægt að nýta bókaðan tíma skal afboða tímann daginn áður eða fyrir kl. 9.00 sama dag ef um veikindi er að ræða. Ef tilkynning berst ekki eða of seint er innheimt forfallagjald sem er án greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Ísland
Greiðsluseðill er sendur til viðkomandi viðskiptavinar ef eftir stendur skuld að loknu meðferðartímabili.
Við hvetjum viðskiptavini okkar til að kanna rétt sinn hvort stéttarfélög viðkomandi taki þátt í kostnaði vegna sjúkraþjálfunar.
Hafðu samband við þitt tryggingafélag til að kanna rétt þinn ef um slys er að ræða.